
Í Auðsholti voru um 1300 kalkúnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósm. Hedeagergaard
Fuglainflúensa greind á alifuglabúi í Ölfusi
Í gær kom upp grunur um fuglainflúensu á kalkúnabúinu Auðsholti í Ölfusi. Eigendur brugðust hratt við og sendu fugla til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum og niðurstöður rannsóknanna lágu fyrir um miðjan dag. Í ljós kom að um skæða fuglainflúensu var að ræða af gerðinni H5N5. Matvælaráðherra hefur fyrirskipað niðurskurð og sóttvarnaráðstafanir í samræmi við tillögur yfirdýralæknis og á grundvelli dýravelferðar og sóttvarna. Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafinn og fyrirmæli hafa verið gefin til að koma í veg fyrir útbreiðslu sýkingarinnar.