
Hér má sjá Sjöstirnið. Ljósm. af vef Wilkipedia.
Nemendur FVA fóru að skoða stjörnurnar
Síðastliðið fimmtudagskvöld fóru nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í stjörnufræði með Finnboga Rögnvaldssyni, kennara sínum, í stjörnuskoðun í svölum norðanblæ upp úr átta að kveldi. Farið var sem leið lá norður fyrir Akrafjall í land Fellsenda. „Þar dró Hlynur Örn Einarsson upp forláta stjörnukíki úr pússi sínu og bauð mönnum að skoða Sjöstirnið, Júpíter skreyttan þremur af Galíleótunglunum og að lokum gægðist Betelgás upp fyrir sjóndeildarhringinn. Helst var aðfinnsluvert að andkalt var og norðurljósadýrð var heldur til trafala,“ segir í færslu á FB síðu FVA.