
Jólatónleikar Hljómlistarfélagsins
Hinir árlegu jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í áttunda sinn sunnudaginn 8. desember nk. í Hjálmakletti í Borgarnesi. Tvennir tónleikar verða í boði; síðdegistónleikar og kvöldtónleikar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17:00 og hinir síðari kl. 20:00. Hljómsveit leikur og syngur ásamt góðum gestum. Aðalgestur er enginn annar en Stefán Hilmarsson sem flestir þekkja meðal annars úr hljómsveitinni Sálin hans Jóns míns.