
Frá hátíðinni á Akranesi árið 2022. Ljósm. ki
Þjóðahátíð Vesturlands haldin á Akranesi í byrjun nóvember
Félag nýrra Íslendinga mun halda Þjóðahátíð Vesturlands (Festival of Nations West Iceland) sunnudaginn 3. nóvember, frá klukkan 14 til 17, í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka á Akranesi. Þessi hátíð fagnar fjölbreytileika menningar á Íslandi og býður upp á líflega dagskrá með fjölhæfum listamönnum sem koma frá ýmsum löndum. Meðal annars má nefna tónlistarflutning söngvaranna Guilherme Azevedo og Junior Sánchez frá Portúgal og Venesúela, hefðbundinn tælenskan dans með Tintrinai Thikhasuk, indverskan dans frá Bollywood Iceland, brasilískan Zouk dans frá Celina & Karol Zouk, íslenskan þjóðdans með Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, búlgarskan dans frá Hop Trop og kraftmikla sýningu frá Iceland Cheer.