Séð inn í líkamsræktina í Heiðarborg. Ljósm. hvalfjardarsveit.is

Ný þrektæki í Heiðarborg

Ný líkamsræktartæki hafa verið keypt og tekin til notkunar í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að vonast sé til þess að tækin munu nýtast vel og séu góð viðbót við þau tæki sem fyrir eru. Með þessum tækjum má gera fjölbreyttar æfingar sem reyna á þol og styrk.

Ný þrektæki í Heiðarborg - Skessuhorn