
Arna Lára býður sig fram til forystu
„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum,“ segir í tilkynningu frá Örnu Láru Jónsdóttur bæjarstjóra á Ísafirði. „Ég hef verið lengi virk í Samfylkingu og verið hluti af forystu flokksins síðustu ár. Saman höfum við breytt Samfylkingunni og fært hana nær fólkinu í landinu. En nú er kominn tími á breytingar við stjórn landsins. Við erum til þjónustu reiðubúin, fáum við til þess traust hjá þjóðinni, og ég vil mitt af mörkum á Alþingi.
Ég er sannfærð um að löng reynsla mín af sveitarstjórnarmálum yrði afar gagnleg á vettvangi landsmálanna – en ég bý einnig yfir mikilli reynslu úr atvinnulífinu og af nýsköpunarmálum. Norðvesturkjördæmi þarf á öflugum talsmanni að halda sem þekkir vel til kjördæmisins og innviða þess. Við stöndum frammi fyrir fjölmörgum áskorunum og fólk gerir kröfu um árangur. Ég mun leggja mig alla fram ásamt öflugri Samfylkingu. Við eru með skýrt plan og höfum einbeittan vilja til verklegra framkvæmda, sem ekki er vanþörf á. Vonandi fæ ég ykkar stuðning til góðra verka!“