Gefa kost á sér á lista Samfylkingar

Tveir íbúar á Vesturlandi hafa á liðnum dögum lýst vilja sínum til að taka sæti á lista Samfylkingar fyrir komandi kosningar (birt með fyrirvara um að þeir séu mögulega fleiri). Hannes S Jónsson á Akranesi, framkvæmstjóri KKÍ, hefur lýst því yfir að hann sé reiðubúinn til að taka annað af tveimur efstu sætum listans. Þá hefur Logi Sigurðsson búfræðingur og bústjóri á Hesti tilkynnt að hann gefi kost á sér, en tilgreinir ekki hvaða sæti hann sækist eftir, en segist bjóða fram krafta mína í sæti sem gæti mögulega skilað honum á þing, til starfa fyrir land og þjóð.

Gefa kost á sér á lista Samfylkingar - Skessuhorn