
Rúnar Marvinsson veitingamaður töfraði fram haustsúpu úr nýuppteknum rófum frá Hraunsmúla. Ljósmyndir: Hlédís Sveinsdóttir
Afmæli Svæðisgarðs var fagnað í Breiðabliki
Laugardaginn 12. október fagnaði Svæðisgarðurinn Snæfellsnes tíu ára afmæli í Íbúa- og gestastofu Snæfellsness að Breiðabliki. Fyrir hádegi fundaði fulltrúaráð Svæðisgarðsins en þar eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna á Snæfellsnesi auk þeirra félaga úr atvinnulífi sem eru með samstarfssamning við Svæðisgarðinn. Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsness, segir að mikill einhugur hafi verið um næstu áfanga í forgangsverkefnum. Svæðisgarðurinn, í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, stóð fyrir matarmarkaði eftir hádegi en þar komu saman framleiðendur af öllu Vesturlandi til að kynna, sýna og selja vörur sínar.