
Sædís Olof Thorsdóttir frá Broadstone kynnir markaðstækið. Ljósmyndir: HIG
Fjölmenni á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Vesturlandi
Margt var um manninn í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær en þá hélt Markaðsstofa Vesturlands uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Vesturlandi. Margrét Björk, fagstjóri Markaðsstofu Vesturlands, var gríðarlega ánægð að sja þá rúmlega 100 gesti sem voru á hátíðinni en saman voru komnir samstarfsaðilar Markaðsstofu Vesturlands ásamt 20 fulltrúum frá ferðaskrifstofuaðilum á höfuðborgarsvæðinu.