
Björn Bjarki Þorsteinsson
Björn Bjarki Þorsteinsson býður sig fram í annað sæti hjá Sjálfstæðisflokki
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð sendi í dag frá sér tilkynningu þess efnis að hann bjóði sig fram í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Kjördæmisþing fer fram á sunnudaginn þar sem kosið verður í fjögur efstu sæti listans. Nú þegar hafa þeir Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi og Teitur Björn Einarsson alþingismaður boðið sig fram í oddvitasæti listans.