Eigendum hænsnfugla og annarra alifugla er ráðlagt að hafa þá inni.

Fuglaflensuveira staðfest í hrafni og hettumávi

Skæð fuglaflensuveira af gerðinni H5N5 hefur verið staðfest í villtum fuglum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að óvissustig sé í gildi vegna þess. „Allir sem halda alifugla eða aðra fugla eru því hvattir til að viðhafa ýtrustu smitvarnir við umgengi á fuglunum sínum. Tilraunastöð HÍ í meinafræði staðfesti síðastliðinn þriðjudag að meinvirkar fuglainflúensuveirur af gerðinni H5N5 hafa greinst í hrafni í Öræfum og í hettumávum á Húsavík. Þetta er fyrsta greining á skæðum fuglainflúensuveirum á þessu ári. Haustið 2023 greindust einnig skæðar fuglainflúensuveirur af gerðinni H5N5 í hröfnum og öðrum villtum fuglum. Það stendur til að heilraðgreina nýjustu veirurnar en það getur gefið vísbendingu um uppruna þeirra,“ segir MAST.

Fuglaflensuveira staðfest í hrafni og hettumávi - Skessuhorn