
Allur hópurinn saman kominn á Jaðarsbökkum. Ljósm. Omar Ricardo Rondon
Vel heppnað Landsmót Samfés á Akranesi
Landsmót Samfés fór fram á Akranesi dagana 4.-6. október og var haldið í Grundaskóla, íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum og félagsmiðstöðinni Arnardal. Landsmótið er haldið að hausti ár hvert og var haldið fyrst á Blönduósi árið 1990. Samfés eru samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi og halda viðburðinn í samstarfi við aðildafélaga sem halda mótið hverju sinni. Síðast var Landsmótið haldið á Akranesi árið 2014.