
Varað við snjókomu og hálku á fimmtudagsmorgun
Veðurstofa Íslands spáir því að snjóað gæti á vestanverðu landinu næsta fimmtudagsmorgun. Vegagerðin sendi frá sér tilkynningu um að varað væri við að hálka gæti fylgt og þá ekki síður á gangstéttum og útivistarstígum.