Bætt aðgengi skipaðra lögráðamanna

Skipaðir lögráðamenn geta nú fengið aðgang að pósthólfi skjólstæðinga sinna á island.is ef nauðsyn þykir þegar þeir eru taldir ófærir um að gæta eigin hagsmuni í samskiptum við hið opinbera. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að flutningur lögræðissviptingaskrár til sýslumanna hefur skapað tækifæri til að bæta stöðu sviptra einstaklinga hér á landi með aukinni hagsmunagæslu í þeirra þágu.

Bætt aðgengi skipaðra lögráðamanna - Skessuhorn