Gyða Steinsdóttir hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri hjá KPMG á Vesturlandi en var bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar frá árinu 2010-2014. Ljósm. stykkisholmur.is

Gyða ráðin í stöðu fjármála- og skrifstofustjóra

Gyða Steinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu fjármála- og skrifstofustjóra hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Staðan var auglýst í kjölfar þess að Þór Örn Jónsson, sem starfað hefur sem bæjarritari í Stykkishólmi frá 1. janúar 2004, óskaði eftir að láta af störfum við 67 ára aldur sinn. Gyða hefur störf á næstu mánuðum.

Gyða ráðin í stöðu fjármála- og skrifstofustjóra - Skessuhorn