Dagskrá frumkvöðladags verður í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Frumkvöðladagur Vesturlands haldinn í Borgarnesi 4. október

Nýsköpun í vestri er yfirskrift frumkvöðladagsins á Vesturlandi sem haldinn verður föstudaginn 4. október í Hjálmakletti í Borgarnesi. Markmið viðburðarins er að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja saman fólk og stuðla að nýjum hugmyndum og verðmætasköpun á svæðinu. Málþing í tilefni dagsins er opið öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, hvort sem þeir eru með eigin viðskiptahugmyndir eða vilja fræðast um þá möguleika sem eru í boði hér á landi.

Frumkvöðladagur Vesturlands haldinn í Borgarnesi 4. október - Skessuhorn