Sameiginleg yfirlýsing ASÍ og SA vegna vinnumansals

Undanfarin misseri hafa komið upp á yfirborðið nokkur mál á íslenskum vinnumarkaði sem sýna að vinnumansal þrífst í íslensku samfélagi. Skemmst er að minnast fréttaskýringarþáttarins Kveiks á RUV sl. þriðjudagskvöld þar sem sýnt var fram á afar bág kjör og aðbúnað erlendra verkamanna í byggingarvinnu hér á landi og á gististöðum þeirra. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins lýsa sameiginlega yfir áhyggjum sínum af því að slíkt geti þrifist hér á landi og finna til ábyrgðar sinnar um að gera allt sem er á þeirra valdi til að vinna gegn vinnumansali.

Sameiginleg yfirlýsing ASÍ og SA vegna vinnumansals - Skessuhorn