
Beð við Þjóðbraut hreinsuð og sett kurl í þau. Ljósmyndir: jas
Næg verkefni hjá garðyrkjustjóra – Myndir frá framkvæmdum í sumar
Vinnuskólinn á Akranesi var starfræktur í sumar eins og undanfarna áratugi og störfuðu í honum að þessu sinni yfir þrjú hundruð ungmenni. Fyrir utan þau hefðbundnu verkefni sem Vinnuskólinn sér um, þá tvo mánuði sem hann er starfandi, þá eru mörg minni verkefni í gangi sem oft fer lítið fyrir og fáir taka eftir. Meðal annars eru endalaus viðhaldverkefni eins og á leiktækjum og leiksvæðum. Þá er víða þörf á að endurbæta gamla stíga hér og þar í bænum. Einnig er mikil vinna sem felst í að viðhalda beðum svo vel sé. Í skógræktinni og Klapparholti þarf að grisja og í sumar gafst tækifæri til að kurla allt sem grisjað var, efnið var svo notað í stíga og beð.