
Dróni Björgunarsveitarinnar Klakks var nýttur til að reyna að stugga við þessum tveimur lömbum sem voru í sjálfheldu ofarlega í Mýrarhyrnu í Grundarfirði. Ljósm. tfk
Göngur og réttir á Vesturlandi – Myndasyrpa
Fyrstu og aðrar leitir stóðu yfir á Vesturlandi í vikunni sem leið. Veður var ágætt til smalamennsku og bæði menn og málleysingjar létu vel af sér. Við birtum hér syrpu mynda héðan og þaðan frá liðnum dögum.