
Birta fyrsta mat á losun á hláturgasi frá framræstu landi
Nýlega kom út grein í tímaritinu „Agriculture, Ecosystem & Environment“ um mælingar á losun á hláturgasi (N2O) frá framræstum mýrum hér á landi. Hláturgas er öflug gróðurhúslofttegund og ein þriggja sem losnar frá framræstum mýrum utan koldíoxíðs (CO2) og metans (CH4). Titill greinarinnar er; „Lítil losun hláturgass úr steinefnaríkum mýrarjarðvegi á Íslandi“ (e: Low nitrous oxide fluxes from mineral affected peatland soils in Iceland). Höfundar greinarinnar eru þau: Jón Guðmundsson, Hlynur Óskarsson frá LbhÍ, Elisabeth Jansen frá Háskólanum á Hólum, Stefán Þór Kristinsson, Alexandra Kjeld og Eldar Máni Gíslason frá Eflu. Um er að ræða niðurstöður umfangsmikilla rannsókna, stýrðum af sérfræðingum Landbúnaðarháskóla Íslands, sem fram fóru á um fjögurra ára tímabili á bæði óframræstum og framræstum mýrum í Borgarfirði.