Tilgátuskálinn á Eiríksstöðum áður en framkvæmdir hófust. Ljósm. Eiríksstaðir

Framkvæmdir við tilgátuskálann á Eiríksstöðum

Hafnar eru framkvæmdir á suðurvegg tilgátuskálans á Eiríksstöðum í Haukadal, en Fornverkaskólinn ásamt Reyni Guðbrandssyni frá Jörva sjá um verkið. Í samtali við Skessuhorn segir Reynir að unnið verði að viðgerðum á vegg og þaki skálans. „Við munum einbeita okkur að suðurhliðinni í ár, rífum niður hlaðna vegginn og lögum þakklæðningu en við fengum til liðs okkur Helga Sigurðsson hleðslumeistara og félaga frá Fornverkaskólanum. Þeir stungu niður í sumar mikið magn af klömbru sem hefur fengið að þorna og verður hún svo sett í vegginn ásamt grjóti. Við munum svo skera streng nú á næstum dögum og notum það efni í þakvinnu,“ segir Reynir.

Framkvæmdir við tilgátuskálann á Eiríksstöðum - Skessuhorn