
Tabea Elisabeth með Hafnarfjallið í baksýn. Ljósm. hig
Víðáttan og náttúran dró Tabeu til Íslands
Tabea Elisabeth, tannsmiður frá Þýskalandi, útskrifaðist með hæstu einkunn úr BS í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri síðastliðið vor. Hún starfar nú við að taka á móti Borgnesingum og öðrum gestum sem starfsmaður Olís í Borgarnesi. Tabea kom fyrst til Íslands árið 2018, heillaðist af landinu, setti tannlæknanámið í Þýskalandi á ís og elti víðáttuna á Íslandi.