Þjálfararnir Sigríður Bjarney Guðnadóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir. Ljósmyndir: hig

Heilsuefling 60+ í Stykkishólmi

Árið 2019 kom upp sú hugmynd í Stykkishólmi að fólk sem væri komið af vinnumarkaði, myndi halda áfram að hreyfa sig. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Sigríður Bjarney Guðnadóttir, íþróttafræðingar og kennarar, halda úti æfingum fyrir íbúa Stykkishólms og nágrennis tvisvar sinnum í hópatímum og tvisvar sinnum í líkamsræktarsal á viku. „Við bjuggum til æfingamyndband sem við sendum á alla þá sem voru á póstlista hjá okkur á meðan Covid gekk yfir en í fyrra voru um 50 manns skráðir hjá okkur,“ segir Gunnhildur þegar blaðamaður Skessuhorns tekur hana tali í íþróttahúsinu í Stykkishólmi.

Heilsuefling 60+ í Stykkishólmi - Skessuhorn