
Bjarni Guðmundsson og Helgi Bjarnason voru ánægðir með kvöldið. Ljósmyndir: hig
Fjölmenni á bókakynningu tveggja höfunda
Safnahús Borgarfjarðar bauð gestum upp á líflegar bókakynningar í gærkveldi. Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður bauð gesti velkomna áður en Helgi Bjarnason steig í pontu og kynnti bók sína, Fjórir snillingar. Eftir að Helgi hafði lokið sinni kynningu söng kirkjukór Saurbæjarprestakalls tvo sálma eftir Bjarna Borgfirðingaskáld við stjórn og undirleik Zsuzsanna Budai. Bjarni var einn af fjórum snillingum sem Helgi skrifar um í bók sinni. Sævar Ingi kynnti því næst Bjarna Guðmundsson til leiks. Spilaði Bjarni líflega á gítar áður en hann kynnti bók sína, Búverk og breytta tímar.