Sigurður Bragi Sigurðsson framkvæmdastjóri Fanntófells og annar stofnanda fyrirtækisins tekur við Svansvottun úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra.

Fanntófell með fyrstu Svansvottuðu innréttinguna

Innréttingaframleiðandinn Fanntófell, sem stofnað var í Reykholti í Borgarfirði árið 1987, en síðar flutt til Reykjavíkur, fékk fyrr í vikunni afhent Svansleyfi fyrst íslenskra framleiðanda fyrir innréttingar, nánar tiltekið borðplöturnar Fenix NTM, Arpa og Duropal. Um er að ræða fyrsta Svansleyfið sem gefið er út hér á landi í viðmiðunum fyrir húsgögn og innréttingar og er þetta því merkilegur áfangi bæði fyrir Fanntófell en einnig Svaninn á Íslandi.