Margt var um manninn í Svarthamarsrétt í Hvalfirði. Ljósm. ah

Réttir á Vesturlandi – myndasyrpa

Undanfarna daga hafa bændur og búalið víðsvegar um landshlutann staðið í árlegum haustönnum því göngur og réttir eru í hámæli. Eftir leiðindar veður á fjöllum fyrri part vikunnar glaðnaði til þannig að fyrir og um síðustu helgi var kjörið veður til smalamennsku og rétta. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá nýliðnum dögum. Skessuhorn hvetur bændur og búalið til að senda ritstjórn myndir úr réttum sem eftir eiga að fara fram, á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is

Réttir á Vesturlandi - myndasyrpa - Skessuhorn