Gleði, væntumþykja – og talsverður rjómi

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi stóð í dag fyrir nýstárlegri fjáröflun, þar sem nemendur, sem lögðu til pening, máttu „rjóma“ stjórn og skemmtinefnd. Allur ágóði rann til góðra málefna, eða til UN Women á Íslandi og í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Eins og sést á meðfylgjandi mynd verður stjórn og skemmtinefnd líklega að fara í sturtu eftir daginn. Enginn vill jú verða súr í skemmtinefnd.

Gleði, væntumþykja – og talsverður rjómi - Skessuhorn