
Hópurinn sem tók þátt í sviðsetningunni og kynningunni. Ljósm. tfk
Forvarnardagur FSN var haldinn í dag – myndasyrpa
Fyrr í dag var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þegar Forvarnardagur FSN fór fram í samvinnu við Samgöngustofu, Neyðarlínuna og viðbragðsaðila á svæðinu. Haldin var kynning fyrir nemendur sem endaði með sýnikennslu á bílslysi fyrir neðan skólann. Nemendum og forvitnum gafst svo færi á að spyrja viðbragðsaðila eftir sviðsetninguna á slysinu.