
Eydís Líndal Finnbogadóttir.
Eydís Líndal skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Eydís hefur verið settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar frá því stofnunin tók til starfa 1. júlí sl., en Alþingi samþykkti í maí á þessu ári frumvarp um nýja Náttúrufræðistofnun. Stofnunin varð til er Landmælingar Íslands, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn og Náttúrufræðistofnun Íslands sameinuðust undir nafninu Náttúrufræðistofnun.