Byrjað að klæða Aðalgötu 16. Ljósm. hig

Tilbúið og klárt fyrir sauðburð

Við Aðalgötu 16 í Stykkishólmi er í smíðum nýtt íbúðarhús á tveimur hæðum en í því verða tvær íbúðir sem nú þegar eru seldar. Iðnaðarmenn voru byrjaðir að klæða húsið með bárujárnsklæðningu og náði Skessuhorn að góma tvo þeirra í stutt spjall. „Það er vöntun á húsnæði hér í Stykkishólmi og okkur langar til að halda áfram að byggja og þétta byggðina í leiðinni,“ segir Páll Vignir Þorbergsson smiður og framkvæmdarstjóri Þ.B. Borg ehf sem stendur að byggingu hússins. En hvenær má vænta verkloka? „Við byrjuðum um leið og búið var að sleppa fé á fjall en húsnæðið verður tilbúið og klárt fyrir sauðburð og þannig viljum við hafa það,“ sagði Hinrik Hjartarson smiður.

Tilbúið og klárt fyrir sauðburð - Skessuhorn