
Fjórðungs samdráttur var í sölu frystra flaka í ágúst. Ljósm. úr safni
Talsverður samdráttur í ágúst í verðmæti sjávarafurða
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam tæplega 25 milljörðum króna í ágúst samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru í síðustu viku. Það er um 8% samdráttur í krónum talið miðað við ágúst í fyrra. Talsverð lækkun var á gengi krónunnar í ágúst eftir að hafa verið fremur stöðugt framan af ári og var gengi krónunnar að jafnaði um 5% lægra nú í ágúst en í sama mánuði í fyrra. Af þessum sökum er samdrátturinn í ágúst ívið meiri mældur í erlendri mynt, eða tæp 13%.