
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra afhenti Jóhanni Óla verðlaunin. Ljósm. Stjórnarráðið
Jóhann Óli hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Hefð er fyrir því að umhverfisráðherra afhendi náttúruverndarviðurkenningu, sem kennd er við Sigríði í Brattholti, á Degi íslenskrar náttúru 16. september. Viðurkenninguna hlaut að þessu sinni Jóhann Óli Hilmarsson sem er meðal helstu fuglavísindamanna landsins og fuglaljósmyndari.