Samkomuhúsið var byggt af Skarðsstrendingum um 1940. Ljósmyndir: Helga Elínborg Guðmundsdóttir

Héldu sveitaball í samkomuhúsinu Röðli

Laugardaginn 17. ágúst síðastliðinn var haldið sveitaball í samkomuhúsinu Röðli á Skarðsströnd í Dölum. Félagar úr harmonikkufélaginu Nikkólínu skiptust á um að spila fyrir dansi. Ballið var þriðji gjörningurinn til að halda á lofti minningu um Hrein Friðfinnsson listamann. Síðasta ballið sem haldið var í samkomuhúsinu Röðli var árið 1964 og því um tímamóta sveitaball að ræða.

Héldu sveitaball í samkomuhúsinu Röðli - Skessuhorn