Fjallkonuhátíð haldin í Skagafirði um aðra helgi

Dagana 7. og 8. september næstkomandi fer fram Fjallkonuhátíð í Skagafirði. Fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum um baðstofulíf og búningaþróun á 19. öld, þjóðbúningasýningu, þjóðbúningamessu, kynnisferð um sögustaði, heimsókn í Glaumbæ, myndatökum og söng.

Fjallkonuhátíð haldin í Skagafirði um aðra helgi - Skessuhorn