Þannig lítur úrkomuspá Veðurstofunnar út kl. 18 á morgun, föstudag.

Gul viðvörun frá föstudagsmorgni og til laugardagskvölds vegna úrkomu

Veðurspáin gerir ráð fyrir talsverðri uppsafnaðri úrkomu á vestanverðu landinu á morgun föstudag og á laugardaginn. Gul viðvörun tekur gildi við Faxaflóa og Breiðafjörð klukkan 6 í fyrramálið og gildir fram á laugardagskvöld. Lægð kemur að landinu vestanverðu seint í kvöld, fimmtudaginn 29. ágúst, sem ber með sér talsverða úrkomuákefð á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir talsverðri rigningu eða vætu þegar lægðin og lægðardragið fer yfir. Mesta úrkoman verður á sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og á Snæfellsnesi.

Gera má ráð fyrir að úrkoman verði nær samfelld á þessum svæðum fram á laugardag. Rigningin mun fyrst ná til Vesturlands þar sem mun rigna samfleytt fram á laugardag. Á laugardag kemur annað úrkomuskot að landinu sunnanverðu með álíka mikilli ákefð. Það úrkomuskot virðist ætla að hanga yfir Suðurlandi og einnig ná vestur. Því verður nær samfelld úrkoma á Vesturlandi og Suðurlandi fram yfir helgi. Ákefðin verður í kringum 5-10 mm/klst, og til fjalla nær hún mest 15 mm/klst. Uppsöfnuð úrkoma er spáð ná tæplega 140 mm á 24 klst á sunnanverðum Vestfjörðum og Barðaströnd, og nær 155 mm á Snæfellsnesi – eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ekki er hægt að útiloka að staðbundin úrkoma geti orðið meiri á einhverjum stöðum.

Í tilkynningu Veðurstofunnar segir: „Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að þetta sumar hefur rignt mikið og má segja að það hafi einkennst af vætu í nær öllum landshlutum. Í byrjun júlí var mikið vatnsveður á Vesturlandi, og svipar þessari spá mikið til veðursins sem var þá. Síðustu daga og vikur hefur verið væta á þeim svæðum sem nefnd hafa verið, sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og á Snæfellsnesi. Nú er því meiri bleyta til staðar í jarðvegi á þessum svæðum en var í byrjun júlí. Því eru aðstæður svo að svæðið er þeim mun viðkvæmara fyrir áætlaðri úrkomu.

Varað er við aukinni hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum á fyrrnefndum svæðum eftir því sem líður á helgina. Skriðuvaktin fylgist grannt með þróun mála um helgina.“