
Harður þriggja bíla árekstur
Fram kemur í dagbók lögreglu að harður þriggja bíla árekstur varð um miðja síðustu viku á gatnamótum Vesturlandsvegar og Leirársveitarvegar. Allar bifreiðarnar voru óökufærar á eftir og voru einhverjir fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús en slys á fólki voru þó ekki talin alvarleg.