Fjórir snillingar er heiti nýrrar bókar Helga blaðamanns

Fjórir snillingar er heiti bókar sem Helgi Bjarnason blaðamaður frá Laugalandi hefur tekið saman og gefur nú út. Þetta er önnur bókin í ritröð sem nefnd er „Sagnaþættir úr Borgarfirði“. Í henni eru persónuþættir þar sem sagt er frá ævi og störfum nokkurra áhugaverðra einstaklinga sem sett hafa svip sinn á samfélagið í Borgarfirði á ýmsum tímum. Fjallað er um tvo bændahöfðingja, sem stóðu framarlega í helstu framfaramálum héraðsbúa á fyrri hluta 20. aldarinnar, og tvö skáld sem Helga þótt vert að lyfta upp á sjónarsviðið. Annað átti sitt blómaskeið fyrir aldamótin 1900 og hitt um aldamótin 1600. „Allt voru þetta snillingar, yfirburðamenn, hver á sínu sviði,“ segir Helgi. Bókin er í kiljuformi, 190 blaðsíður að stærð og er prýdd fjölda ljósmynda, meðal annars sögulegra. Við sögu koma 467 menn og konur.

Fjórir snillingar er heiti nýrrar bókar Helga blaðamanns - Skessuhorn