Út er komin skýrsla um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar

Nýverið skiluðu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Fjórðungssamband Vestfirðinga af sér viðmikilli skýrslu til umhverfis,- orku- og loftlagsráðherra með tillögum um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar. Í skýrslunni er farið yfir verndargildi svæðisins og áhrif þess, tækifæri og áskoranir á samfélag, byggð og atvinnulíf.  Yfirstjórn verkefnisins var í höndum stýrihóps skipuðum af ráðherra undir formennsku Sigríðar Finsen.  Auk SSV og FV komu ýmsir aðilar að verkefninu. Jakob Jóhann Stakowski starfsmaður Breiðafjarðarnefndar vann stöðugreiningu fyrir Breiðafjarðarsvæðið, Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV greindi hagrænt virði auðlinda Breiðafjarðar og KPMG vann sviðsmyndagreiningu um helstu drifkrafta og mögulega þróun í samfélögunum við Breiðfjörðinni.

Út er komin skýrsla um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar - Skessuhorn