
Sviðslistaverkið Konukroppar sýnt í lauginni í Brautartungu
Sunnudaginn 18. ágúst nk. verður frumflutt verkið „Konukroppar“ eftir sviðslistakonurnar Sigríði Ástu Olgeirsdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur. Verkið er af óhefðbundnari gerðinni, en það fer fram í sundlauginni við Brautartungu í Lundarreykjadal. Í lýsingu á viðburðinum segir að það sé; "...óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi; fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði. Sambandið milli kropps og vatns er rannsakað í seiðandi verki sem liggur á mörkum dans- og sviðslistar.“
Höfundarnir eru einnig flytjendur verksins og eru þær báðar leikkonur auk þess sem Snædís er dansari og Sigríður söngkona. „Við stofnuðum sviðslistahópinn Gleym-mér-ei því okkur langaði svo að sameina listræna krafta okkar og nýta ólíka styrkleika og ég held að okkur sé að takast það nokkuð vel,“ segir Sigríður um samstarf þeirra Snædísar.
En af hverju að setja upp verk í sundlaug? „Eins og margir Íslendingar þá förum við mikið í sund og við vorum bara rosa mikið að pæla í líkömum í sundi og upp úr sundi, hver munurinn á hreyfingum er í vatni og upp úr vatni og sérstaklega út frá sjónarhorni kvenna. Við vildum hafa fullt af konum í verkinu og fengum alveg frábæran kvennakór til liðs við okkur, Freyjukórinn, en þær verða sérstakir gestir og setja algjörlega punktinn yfir i-ið.“ segir Snædís.
Sýningin hefst klukkan 17 sunnudaginn 18. ágúst við sundlaugina í Brautartungu. Mælt er með að klæða sig eftir veðri og ef til vill kippa sundfötum með í töskuna!
