
Minningarsteinn um séra Hallgrím afhjúpaður í Saurbæ á þriðjudaginn
Í tilefni af 350. ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar verður afhjúpaður minningarsteinn um Hallgrím og konu hans Guðríði Símonardóttur á leiði Hallgríms í Saurbæjarkirkjugarði með athöfn í Hallgrímskirkju í Saurbæ og í Saurbæjarkirkjugarði þriðjudaginn 20. ágúst klukkan 17.00.
Verkefninu hefur stýrt Guðmundur Rafn Sigurðsson fráfarandi framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs. Steininn gerir Þór Sigmundsson steinsmiður. Áletrun á steininum er gerð samkvæmt tillögu Karls Sigurbjörnssonar fyrrum biskups Íslands. Áletrunina teiknar Gunnar Karlsson.
Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ safnaði styrkjum sem standa undir öllum kostnaði við gerð steinsins og við flutning gamla steinsins af leiði Hallgríms inn í kirkjuna þar sem honum hefur verið fundinn staður til framtíðar.
Athöfnin hefst í Hallgrímskirkju í Saurbæ klukkan 17.00 þar sem prestar prestakallsins leiða helgistund og minnast helstu viðburða í Saurbæ í tilefni af 350. ártíð Hallgríms Péturssonar. Kristján Valur Ingólfsson minnist Hallgríms og Guðríðar. Organisti og kórstjóri er Zsuzsanna Budai.
Síðan verður gengið að leiði Hallgríms þar sem biskup Íslands frú Agnes M Sigurðardóttir og frú Kristín Þ Guðjónsdóttir ekkja séra Karls Sigurbjörnssonar biskups, afhjúpa minningarstein Hallgríms og Guðríðar. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Agnes biskup helgar steininn og blessar söfnuðinn.
Að athöfninni lokinni er messukaffi í boði sóknarnefndar og Hollvinafélagsins í fyrrum prestssetri Saurbæjar. Allir velkomnir.
-fréttatilkynning