
Telja eldgos líklegt á næstu tveimur vikum
Kvikusöfnun undir Svartsengi er stöðug ef horft er til síðustu vikna, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. „Líkur eru á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á næstu tveimur til þremur vikum. Landris heldur áfram og hefur kvikusöfnun undir Svartsengi verið nokkuð stöðug ef horft er til síðustu vikna. Talið er að á bilinu 13 til 19 milljón rúmmetrar af kviku þurfi nú að bætast við undir Svartsengi frá síðasta gosi til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Samkvæmt líkanreikningum er líklegast að magnið sem bæst hefur við frá síðasta eldgosi nálgist 16 milljónir rúmmetra á næstu dögum. Hættustig hefur verið hækkað í ljósi nýjustu gagna og sviðsmyndir uppfærðar.“ Þá telja sérfræðingar aukna líku á að hraun gæti brotið sér leið innan varnargarða við Grindavík um sprungur sem opnuðust í skjálftunum í nóvember.
Skjálftavirknin síðustu daga hefur verið mjög lítil. Tíu skjálftar hafa greinst í grennd við kvikuganginn í Sundhnjúksgígaröðinni síðastliðinn sólarhring og um 90 síðastliðna viku. Flestir þeirra eru undir einum að stærð og eru á svipuðum slóðum og í fyrri atburðum. Til samanburðar mældust rúmlega 50 skjálftar daglega í aðdraganda síðasta goss. Skjálftavirknin fer hægt vaxandi dag frá degi ef horft er til síðustu vikna sem er í takti við þróun kvikusöfnunar undir Svartsengi.