
Andlát – Hjörtur Þórarinsson fv skólastjóri
Látinn er Hjörtur Þórarinsson fyrrum skólastjóri og fræðslustjóri, 97 ára að aldri. Hjörtur fæddist á Miðhúsum í Reykhólahreppi og ólst þar upp til 12 ára aldurs en flutti þá að Reykhólum. Áhugi hans á kennslu og skólamálum vaknaði snemma því hann lauk kennaraprófi 1948, íþróttakennaraprófi frá Laugarvatni 1949 og tók reyndar öll kennarapróf sem til voru á þeim tíma; í söngkennslu, danskennslu, handavinnukennslu og síðar einnig ökukennarapróf. Kennaraferill Hjartar hófst við Barna- og miðskólann í Stykkishólmi þar sem hann starfaði 1949-1951. Hann flutti á Selfoss og starfaði við Barna- og miðskólann á Selfossi 1951 - 1961 með ársleyfi vegna kennslu við Flensborgarskólann 1959-60. Einnig var hann stundakennari við Iðnskólann á Selfossi sömu ár. Hjörtur og Ólöf Sigurðardóttir eiginkona hans fluttust í Reykholtsdalinn 1961 og hófu störf við Kleppjárnsreykjaskóla. Hún sem handavinnukennari en hann sem skólastjóri við nýbyggðan skóla. Þar störfuðu þau óslitið til ársins 1978. Samhliða skólastjórastarfinu sinnti Hjörtur einnig ökukennslu í uppsveitum Borgarfjarðar og lærði 501 Borgfirðingur á bíl hjá honum á þessum árum.
Það var undir lok sjötta áratugarins sem fimm hreppar norðan Skarðsheiðar; Andakílshreppur, Skorradalshreppur, Lundarreykjadalshreppur, Reykholtsdalshreppur og Hálsahreppur, tóku höndum saman og hófu byggingu barnaskóla á Kleppjárnsreykjum. Þar þótti staðsetning hentug, tiltölulega miðsvæðis í héraðinu, heitur hver með nægu vatni var til kyndingar og þar var byggðarkjarni fyrir; nokkur garðyrkjubýli, gamalt reisulegt hús sem fyrrum þjónaði hlutverki hælis og héraðslæknir starfaði og bjó þá á Kleppjárnsreykjum. Forsvarsmenn þessara sveitarfélaga voru samhuga um uppbyggingu skólans. Hjörtur var ráðinn til að stýra nýjum skóla og móta starfsemina, en skólinn var í fyrstu heimavistarskóli þeirra barna sem lengra áttu að sækja og var hlutverk skólastjórahjónanna, meðal annarra, að vera uppalendur barna sem ungum að aldri var gert að dvelja langdvölum frá heimilum sínum.
Eftir veruna í Reykholtsdalnum lágu leiðir þeirra Hjartar og Ólafar aftur til Selfoss þar sem hann kenndi við Gagnfræðaskólann á Selfossi 1978-1980 en tók þá við starfi framkvæmdastjóra Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem hann sinnti til ársloka 1994 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Ólöf lést árið 1995. Seinni kona Hjartar var Bryndís Steinþórsdóttir húsmæðrakennari, sem einnig er látin. Hjörtur og Ólöf láta eftir sig eina kjördóttur; Sigrúnu en í skjóli hennar bjó Hjörtur síðustu æviárin í Mosfellsdalnum.
Í Borgarfirði var Hjörtur á sínum tíma virkur í starfi UMSB, kom m.a. að Landsmótinu 1975 á Akranesi og Húsafellshátíðum, var í stjórn Tónlistarskóla Borgarfjarðar, auk þess að vera í sóknarnefnd Reykholtskirkju. Eftir starfslok Hjartar á almennum vinnumarkaði hefur hann gegnt fjölda trúnaðarstarfa á Suðurlandi, fyrir Félag eldri borgara, Kiwanishreyfinguna og sinnt ýmsum hugðarefnum. Eftir Hjört liggja ótal ljóð og lausavísur sem meðal annars hafa birst í Skessuhorni. Ekkert tilefni taldi hann of ómerkilegt fyrir vísnagerð og flutti hann gjarnan heilu ræðurnar að miklu leyti í bundnu máli.
Þrátt fyrir að vera kominn hátt á tíræðisaldur var Hjörtur með eindæmum ern og sagði í samtali við Skessuhorn fyrir nokkrum árum heilsuna eins góða og hægt væri að óska sér. Aðspurður um góð ráð til að halda svo góðri heilsu svaraði Hjörtur: „Það þarf að hreyfa sig reglulega, borða hollan mat og ekki of mikið af honum, en fyrst og fremst þó að láta sér líða vel í sálinni, þá er svo gaman að lifa.“ Hjörtur veiktist skyndilega og lést í gær.
Útför Hjartar fer fram frá Grafarvogskirkju 9. ágúst kl. 13.00.