Þannig leit vegurinn um Miðdali út í vor. Nú er verið að fræsa upp slitlag og fleiri vegaframkvæmdir í gangi sem gera leiðina erfiða. Ljósm. hj

Víða er slæmt ástand á Vestfjarðavegi

Mjög slæmt ástand er á slitlaginu víða á Vestfjarðavegi (60) frá Bröttubrekku yfir í Gufudalssveit og á Reykhólasveitarvegi (607). Hraði er af þeim sökum takmarkaður á nokkrum stöðum og biðlar Vegagerðin til vegfarenda að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát. Milli Fellsenda og Erpsstaða er búið að fræsa slitlagið af veginum og er vegurinn mjög ósléttur og holóttur og illfær fyrir húsbíla og hjólhýsi. Ökumönnum með slík tæki er bent á hjáleið um Hlíðarveg (585). Unnið verður að ræsagerð á þessum kafla í vikunni og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Hraði er takmarkaður og eru vegfarendur beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát.

Loks er á Svínadal í Dölum unnið að viðgerðum og mikið er af lausri möl á veginum. Hætta er á steinkasti og eru vegfarendur beðnir að aka með gát og sýna tillitssemi með því að hægja á þegar bíl er mætt og halda hæfilegri fjarlægð í næsta bíl.

Víða er slæmt ástand á Vestfjarðavegi - Skessuhorn