Horft af bæjarhlaðinu við Grund laugardaginn 13. júlí. Ljósm. Björg Ágústsdóttir

Mesta sólarhringsúrkoma sem mælst hefur í júlí

Helgina 13.-14. júlí var eins og kunnugt er mikið vatnsveður á Vesturlandi. Gul viðvörun var í gildi vegna úrkomu og vinds á Faxaflóa og í Breiðafirði, og var að sama skapi varað við vatnavöxtum og skriðuhættu. Spár gengu fyllilega eftir og varð það svo að mikil úrkoma var á Snæfellsnesi og Barðaströnd alla þessa helgi. Mesta ákefðin var á laugardeginum og aðfararnótt sunnudags. Í Grundarfirði mældist mesta úrkoman, þ.e. 227 mm af regni sem er mesta úrkoma sem mæld hefur verið á einum sólarhring í Grundarfirði og jafnframt mesta sólarhringsúrkoma sem mæld hefur verið í júlímánuði á landsvísu.

Mesta sólarhringsúrkoma sem mælst hefur í júlí - Skessuhorn