
Líkur á hellidembu og jafnvel eldingum síðdegis
Veðurstofan spáir í dag austlægri- eða breytilegri átt, 3-10 m/s. Dálítil rigning eða súld í flestum landshlutum og þokuloft við austurströndina. Eftir hádegi dregur úr úrkomu og birtir sums staðar til, en skúrir verða sunnantil. Þá aukast líkur á hellidembu og að þeim fylgi jafnvel eldingar suðvestanlands seinnipartinn. Hiti verður 8 til 18 stig, svalast við austurströndina.
Á morgun verða skúrir, einkum síðdegis, en víða bjart á Norðurlandi fyrir hádegi. Hlýnandi veður fyrir austan.