Íbúðir í fjölbýli hækka meira í verði

Íbúðaverð hækkaði jafn mikið milli mánaðanna maí og júní og mánuðinn áður, en hækkunin í júní var mest á fjölbýlishúsum á landsbyggðinni. Þetta kemur fram á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Ný vísitala íbúðaverðs mældist 106,4 stig í júní og hækkaði um 1,4% á milli mánaða, sem er sama hækkun og var í maí þegar vísitalan hækkaði einnig um 1,4% milli mánaða.

Íbúðir í fjölbýli hækka meira í verði - Skessuhorn