Fjöldi sýna á leið til greiningar. Ljósm. RML

Arfgerðargeining úr sauðfé gengur vel

Góður gangur hefur verið í arfgerðargreiningum hjá Íslenskri erfðagreiningu í vor og sumar. Frá 1. apríl hafa bændur sent inn um 49 þúsund sýni úr kindum (aðallega lömbum) til að fá greiningu á arfgerðir m.t.t. riðumótstöðu. Þegar liggja fyrir niðurstöður fyrir um 29 þúsund sýni og því um 20 þúsund sýni sem nú eru í vinnslu. Þetta kemur fram á heimasíðu Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, RML.

Arfgerðargeining úr sauðfé gengur vel - Skessuhorn