
Vegleg barna- og unglingadagskrá á IceDocs á Akranesi
Alþjóðlega heimildamyndahátíðin, Iceland Documentary Film Festival, hefst með pompi og pragt á Akranesi miðvikudagskvöldið 17. júlí og stendur yfir þar til á sunnudagskvöld. Aðstandendur IceDocs segjast ætíð hafa lagt áherslu á þátttöku barna og ungmenna á hátíðinni og í ár er barna- og ungmennadagskráin veglegri en nokkru sinni. Þrenn námskeið verða í boði fyrir börn og unglinga; heimildamyndagerð, veggjalist og ljósmyndun. Barna- og fjölskyldufjör og hoppukastali verður við Bíóhöllina á laugardaginn.