Franski sendiherrann og Birgir afhjúpa minnisvarðann. Ljósmyndir: af

Minningarreitur afhjúpaður á Staðarstað

Síðastliðinn miðvikudag var minningarreitur afhjúpaður í kirkjugarðinum á Staðarstað í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hann er um franska sjómenn sem létu lífið í ofsaveðri 28. mars árið 1870. Það var Birgir Þ. Kjartansson, fyrrverandi félagsmálastjóri, sem kostaði gerð minnisvarðans. Hélt hann tölu við athöfnina og séra Jakob Roland, kanslari biskupsdæmis kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, lagði blessun sína yfir reitinn.

Minningarreitur afhjúpaður á Staðarstað - Skessuhorn