Báturinn að sökkva, en hann er í eigu stórútgerðarfélagsins Landsýnar AK

Lét undan síga þegar flóðgáttir opnuðust

Vart hefur farið framhjá nokkrum íbúa á Vesturlandi sú mikla úrkoma sem einkennt hefur veðráttuna síðustu daga. Úrkomumet var slegið í Grundarfirði en víðsvegar um Vesturland rigndi bókstaflega eins og hellt væri úr fötu. Sportveiðibáturinn á meðfylgjandi mynd er við smábátabryggjuna á Akranesi. Um miðjan dag í gær barst eigendum hans skilaboð um að báturinn væri að sökkva í höfninni. Brugðist var skjótt við en þegar ljóst var að aðstoðar væri þurfi var haft samband við Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar og óskað eftir aðstoð og dælu. Þar var brugðist skjótt við og tókst að dæla úr bátnum og koma þannig í veg fyrir að hann sykki til botns. Svo lygilegt sem það er dugði úrkoma dagana áður til að fylla bátinn af vatni þannig að sjór tók að streyma yfir borðstokkinn. Ritstjóri var á staðnum og lofaði slökkviliðsmönnum að ítarlega yrði greint frá óhappinu í Skessuhorni. Sami ritstjóri er reyndar eigandi umrædds báts og viðurkennir hér með að hafa með öllu sofið á verðinum og trassað að dæla úr bátnum blessuðu rigningarvatninu.

Slökkviliðsmenn byrjaðir að dæla og einn liðsmaður þeirra kom sér fyrir fremst á stefni bátsins til að aftari hluti hans lyftist nægjanlega mikið.

Lét undan síga þegar flóðgáttir opnuðust - Skessuhorn